Um Funkþáttinn

Uppgangurinn í elektrónískri tónlist hefur sennilega aldrei verið meiri en nú. Funkþátturinn skannar senurnar og finnur það besta sem er í gangi. Frekar en að elta einn stíl tónlistar leitar þátturinn víða fanga, frá því framsæknasta sem er að gerast í Frakklandi, Þýskalandi og á austurströnd Bandaríkjana í dag, til týndra gersema níunda og tíunda áratugarins.
 
Don Balli Funk, sem vill láta kalla sig DBF í dag því honum finnst DFA svo kúl, hefur stjórnað Funkþættinum síðan að Þossi stakk af seint á síðustu öld. Þá var þátturinn búinn að vera á dagskrá X-ins 97.7 frá upphafi. Fyrst sem sérþáttur um funktónlist, en síðar þróaðist þátturinn hægt og rólega í það sem hann er í dag.
 
Nýverið bættist við annar þáttarstjórnandi, Terrordisco, en mixin sem hann hefur birt á netinu í nokkur ár hafa farið víða. Hann hefur einnig verið meðlimur í 70% af öllum elektrónískum hljómsveitum sem stofnaðar hafa verið á íslandi síðastliðin þrjú ár.
 
Funkþátturinn er á dagskrá X-ins 97.7 á fimmtudagskvöldum, milli 11 og 01.