Um DBF

DA BEGINNING
Don Balli Funk byrjaði að Dj’a í félagsmiðstöðinni Frostaskjóli í vesturbæ Reykjavíkur þegar hann var 13 ára árið 1989. Var hann fluttur þaðan nauðugur úr einhverju fallegasta hverfi landsins upp í einhvern útnára út á landi sem heitir Grafarvogur. Þegar loksins var búið að byggja félagsmiðstöð þar gerðist Funkarinn plötusnúður í Fjörgyn og spilaði tónlistartegundina hardcore í tætlur, enda tónlist þess tíma árin 1990-1992. Var hann þar í góðum félagsskap frábærra plötusnúða eins og Dj Arnars sem er hvað best þekktur fyrir að vera annar helmingurinn í Arnar og Frímann dúettinum og svo Bigga Bix sem gert hefur remix fyrir ekki ómerkari tónlistarmenn en Madonnu og Beck.

FJÖRGYN
Balli stóð fyrir því að kaupa plötur fyrir Fjörgyn og þegar hann hafði lokið sér af átti þessi litla félagsmiðstöð í Grafarvoginum langstærsta hardcore safn af öllum félagsmiðstöðvum á landinu. Reyndar fylgdi þessum eftirsótta titli að ekki var hægt að kaupa plötur í eitt og hálft ár eftir að hann hætti þarna og einnig hafði verið eytt öllum þeim peningum sem Fjörgyn hafði fengið sérstaklega til að kaupa diskóljós í húsið. Svo hvarf nú meirihlutinn af öllu þessu hardcore safni í kringum sama leyti og Balli yfirgaf Fjörgyn, mjög sorglegt mál allt saman.
FÖNKÞÁTTURINN
Balli hætti svo alveg að spila opinberlega í nokkur ár eftir þennan tíma nema í súrum eftirpartíum hjá vinum og kunningjum. Eftir að hafa komið fram sem gestastjórnandi í Fönkþætti Þossa frá árinu 1996 var honum boðið að taka formlega við þættinum í október árið 1998. Nafni hans var breytt í Fönkþátturinn og breyttust áherslur hans hægt en örugglega. Meðfram að vera byrjaður að spila reglulega á fimmtudagskvöldum á X-inu í Funkþættinum sem hefur alltaf verið heimili hans var Balli byrjaður að spila opinberlega aftur sem DJ og var staðurinn Thomsen fyrsta heimili Don Balla Funk.

THOMSEN
Á Thomsen spilaði Balli árin 1998-2001 svo að segja allar helgar og stóð ásamt eigendum Thomsen að innflutningi á fjöldanum öllum af erlendum plötusnúðum sem spiluðu þar. Thomsen tímabilið var mjög fyndið fyrir Balla en þarna var hann að taka sín fyrstu skref í að skipta úr plötuspilurum yfir í CD spilara. Þetta þótti mjög einkennilegt í plötusnúða samfélaginu enda var hann einn af þeim fyrstu sem skiptu. Kannski ekki skrýtið að DJ strákarnir hafi litið þetta hornauga þar sem tæknin var ekki nálægt því að vera á þeim stað sem hún er á í dag.

LP > CD
Tækin sem Balli notaði á þessum tíma voru Pioneer 600 mixer (sem er reyndar enn mikið notaður mixer) en spilararnir voru frumútgáfur af pitchanlegum Pioneer geislaspilurum sem báru nafnið CDJ-500. Staðurinn var svo megnugur að kaupa 2 slíka spilara en annar spilarinn gaf upp öndina í einhverju eftirpartýi sem haldið var í risi Thomsen eftir lokun eitt kvöldið. Þetta gerði að verkum að seinastu mánuðina sem Balli spilaði þar notaði hann einn CDJ-500 og einn venjulegan stofugeislaspilara sem eigandi Thomsen lánaði honum að heiman. Þetta var mjög fyndið því það þurfti að stilla öllu settinu upp eftir því að annaðhvort lag var ekki hægt að pitcha upp né niður og fylgdu þessir miklir útreikningar í oft mjög einkennilegu ástandi.

LENGSTA SETTIÐ
Á Thomsen setti Balli met í hversu lengi hann spilaði í einu setti. Eitt árið þegar stjörnvöld á Íslandi ákváðu að að leyfa algjörlega hömlulausan opnunartíma yfir helgar byrjaði Funkarinn að spila eitt kvöldið klukkan tólf að nóttu til og spilaði stanslaust fyrir fullu húsi í kjallara Thomsen til klukkan tíu um morguninn. Staðurinn var ennþá fullur þegar hann loks hneig niður í DJ búrinu og þurfti aðstoð við að standa upp. Ákveðið var í kjölfarið að nú væri nóg komið og ljósin kveikt og lýðnum hent á dyr. Eitt besta kvöld sem The Don hefur spilað á engu að síður að hans sögn: „Hell yeah ef þú varst þar og manst eftir þessu kvöldi“

LOKAORÐ
Í kjölfar lokunar Thomsen byrjaði Balli að spila á hinum ýmsu stöðum og fyrir utan menntaskólaböll ásamt fjöldanum öllum af einkapartýum hefur hann spilað á velflestum skemmtistöðum Reykjavíkur og má þar helst nefna Vegamót, Barinn og sitt persónulega athvarf Kaffibarinn sem nokkra af hans uppáhaldsstöðum í gegnum tíðina.
„The rest is history“ eins og þeir segja…